já okey engin samræmd próf eða er ég kannski að misskilja, ég sé bæði góða og slæma kosti við það eins og hvernig eiga betri skólar landsins að meta nemendur inn í skólana, en aftur á móti voru samræmdu prófin þegar ég tók þau algjör steipa og hjálpuðu engum en hvað finnst ykkur??
Samræmd próf aflögð og kennaranám lengt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér persónulega finnast samræmd próf rugl.
Og svo eru framhaldsskólarnir alltaf farnir að horfa minna og minna til þeirra, meta skólaeinkunnina meira heldur en eitthvað próf.
En samt finnst mér að það ætti að vera einhver svona staðall til að meta alla út frá. En samt er það svo rangt af því að þó að einn sé alveg vonlaus í bóknámi í grunnskóla, þá getur hann alveg brillerað í einhverju verk/iðnnámi í framhaldsskóla.
Æji, kemur kannski ekki rétt út hjá mér, en vona að þú skiljir hvað ég er að meina...
Sandra Dögg Guðmundsdóttir, 27.11.2007 kl. 00:05
það er ekkert sem heitir slæmur kostur
Stefán (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 02:43
Hæ Hæ skvís mér finnst þessi samræmdu próf oft ekkert í takt við það námsefni sem maður hafði lært. Mér finnst líka börn á þessum aldri alls ekki hafa þroska til að taka afleiðingar um það að þau verði að taka þessi próf með trompi því oft á tíðum er kæruleysin mest á þessum árum. Ég hugsaði oft þannig "Æ só"
Eva Rut (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 06:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.